Færsluflokkur: Dægurmál

Lögreglan er of væg!!!

Það er vaninn að lögreglan tekur síðan bara skírslur af fólkinu og sleppir því lausu svo það geti hlaupið uppá fjall aftur.

Veit einhver hver viðurlögin eru við að hlíða ekki skipun lögreglunar? Hvað myndi gerast ef ég stoppa ekki þegar Lögreglan er að taka mig fyrir of hraðan akstur?

Löglegan gaf fólkinu ákveðin tíma eftir að hún gaf skipanir áður en hún tók til verka, er yfirvaldið hrætt við að fá kvartanir um að of hart sé tekið á fólkinu? Saving Iceland er að þverbrjóta lögin og gerir hvað sem því dettur í hug og kemst ákveðið langt upp með það án frekari viðurlaga. Lögreglan á að vaða til verks og stoppa fólkið eins og hún gerir þegar einhver keyrir of hratt eða er að brjóta lögin. 

Ég velti því oft fyrir mér af hverju Lögreglan tekur svona ljúft á þessu fólki. Er ekki hægt að sekta fólkið stórsektum, loka það inni í ákveðin tíma og setja það á sakaskrá?


mbl.is Sjö handteknir á Hengilsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú veist að það er 2008 ef.....

1. Þú ferð í Partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú féllst fyrir þessu...

Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.

Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn
verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!

En... ef þú bíður of lengi, mun það ekki skipta neinu því hverjum er ekki sama svona lista? En vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun


Stopp nú!!!

Eigum við að ræða þetta eitthvað frekar… Angry

Ráðast á friðhelgi fólks með því að berja hús Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar að utan og vera með háreisti. Á maðurinn ekki börn og fjölskyldu, nú eru þið kominn á botninn í mínum huga og gengið 4 skrefum of langt…


Mér finnst að lögreglan sé kominn með nógu mikið að ástæðum til að stoppa þessa hryðjuverkastarfsemi sem kallar sig Saving Iceland í eitt skipti fyrir öll. Það má líkja þessum samtökum við Alkieda, munið eftir því í fyrrasumar þegar skrípalíngarnir réðust inná Hönnun á Reyðarfirði og læsti fólk þar inná skrifstofu sem var ekkert annað en mannrán. Ninja Bandit

Hvernig endaði það mál eiginlega, mér finnst að einhver eigi að verða fangelsaður. Yfirvöld eiga að taka miklu harðar á þessu máli Police


mbl.is Mótmælaaðgerðum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolefnisjöfnun hvað!!!

Þetta var náttúrulega frábært tækifæri til æfinga og ég vona að slökkviliðið hafi nýtt það til botns. Það er ekki á hverjum degi sem slökkviliðið fái að brenna heilu húsin til að sjá hvernig þau brenna og pæla í því hvernig eldurinn athafnast um húsið. Mikill lærdómur sem þarna hefur skapast...

En mér er hugsað til andrúmsloftsins þegar ég sé allan þennan svarta reik. Það er nú alltaf verið að passa uppá hvað megi brenna og að ekki eigi að brenna neitt í fjölbýli.
Auðvitað voru öll tilskilin leyfi veitt fyrir þessa uppákomu til að læra sem mest af þessari miklu reynslu sem skapast af því að brenna húsið.

Hvað ætli þessi bruni hafi leyst frá sér miklu eiturefnum í andrúmsloftið? Hvernig ætli það kæmi út að bera saman mengunina af þessum bruna og bílum í gangi á sama tíma. Þetta er bara eitthvað sem ég er púsla saman í mínum skrítna huga. Ég er viss um að kolefnisjöfnunarátak vestfjarða kolféll þarna á einu bretti ef þeir eru með það í huga. Það þarf að planta ansi mörgum trjám í staðinn til að jafna þetta upp.

Ég reikna þó passlega með að allt hafi verið rannsakað og skoðað til hlítar áður en þessi bruni var framkvæmdur í sambandi við mengun. 

En að öðru þá finn ég fyrir Sigurgeir sem fékk örugglega ekki að semja mikið um verðið á eigninni sinni. Verðið hefur pottþétt verið reiknað með gengi húsnæðisverðs sem var á þeim tíma í Bolungarvík en ekki haft í huga byggingarkostnað á nýju samskonar húsnæði.


mbl.is Dísarlandið brennur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Björn Magnús Stefánsson

Höfundur

Björn Magnús Stefánsson
Björn Magnús Stefánsson

Ég er brottfluttur námsmaður sem fylgist gaumgæfilega með málunum heima. Ég er með fréttafíkn og leyni aldrei á skoðunum mínum.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband